Ráðningar

Við höfum umtalsverða reynslu af ráðningum og ráðgjöf á sviði starfsmannamála. Vitum að ráðningar eru meðal mikilvægustu verkefna stjórnenda hverju sinni og að hæft starfsfólk er lykilþáttur í árangursríkri þróun fyrirtækja og stofnana.


Starfsleit er að sama skapi mikilvæg fyrir þá sem eru að hefja starfsferilinn, taka

næsta skref eða leita nýrra tækifæra.


Gott er að hafa í huga við gerð umsóknar:

  • Ferilskrá (CV) – Hafðu ferilskránna uppfærða, skýra og hnitmiðaða með helstu upplýsingum um starfsreynslu, menntun og færni
  • Kynningarbréf – Helstu persónuupplýsingar, styrkleikar og ástæða umsóknar. Helst ekki lengra en ein blaðsíða.
  • Uppsetning – Nýttu leiðbeiningar á netinu, gervigreind og önnur verkfæri
  • Prófskírteini og vottanir – Láttu viðeigandi gögn fylgja umsókn
  • Umsagnaraðilar – Fáðu samþykki áður en þú vísar á meðmælendur


Við veitum faglega þjónustu og gætum fyllsta trúnaðar.

Störf í boði