Dagskrá:
Kl. 16:00 Húsið opnar
Kl. 16:15 Halldór Þorkelsson, framkvæmdastjóri Capacent býður gesti velkomna.
Kl. 16:25 Viltu frelsa peningana? Stjórnun veltufjár og samspil aðila í aðfangakeðjunni. Sigurður Hjalti Kristjánsson, ráðgjafi.
Markaðsaðstæður á Íslandi eru að breytast hratt með innkomu alþjóðlegra risa og aukinni samkeppni við netverslun. Betri stjórnun veltufjár hefur bein áhrif á virði fyrirtækis, skilar því meira lausafé og eykur getuna til að takast á við samkeppnina. Capacent hefur aðstoðað um 300 viðskiptavini á Norðurlöndunum við stjórnun veltufjár þar sem fjárhagslegur ávinningur verkefnanna hefur verið mikill. Í erindinu fjallar Sigurður um mikilvægi veltufjár, tengir það við hagnaðarmyndun og fjallar um samspil aðila í aðfangakeðju fyrirtækja. Hann velur matvörumarkaðinn sem umfjöllunarefni og ber frammistöðu okkar saman við nágrannalöndin.
Kl. 16:45 Nýjar áherslur í stjórnun frammistöðu. Gunnar Haugen, ráðgjafi.
Góð frammistaða starfsfólks í starfi getur skipt sköpum í rekstri fyrirtækja. Undanfarin misseri hafa áherslur fyrirtækja í frammistöðumati tekið miklum stakkaskiptum. Í erindi sínu fer Gunnar Haugen yfir helstu breytingarnar sem hafa átt sér stað og þau mikilvægu áhrif sem þær geta haft á frammistöðu, líðan og árangur einstaklinga og fyrirtækja.
Kl. 17:10 Er viðskiptavinurinn rokkstjarnan í þínu fyrirtæki? Um aðferðafræði Design Thinking í stefnumótun með áherslu á upplifun viðskiptavina. Þórey Vilhjálmsdóttir, ráðgjafi.
Í dag er upplifun viðskiptavina gríðarlega mikilvæg og nýsköpun byggð á upplifun þeirra oftar en ekki það sem skilur á milli í samkeppninni. Mikilvægt er að vera við stjórnvölinn með skýra stefnu sem fylgt er eftir; stefnu þar sem viðskiptavinurinn er rokkstjarnan!
Fundurinn verður haldinn í Lions salnum, Skipagötu 14, 4. hæð. Boðið verður upp á léttar veitingar. Allir eru velkomnir!
Hlökkum til að sjá ykkur,
Ráðgjafar Capacent.