Capacent er leiðandi þekkingarfyrirtæki á sviði ráðgjafar, rannsókna og ráðninga. Capacent býður lausnir sem ná til allra þátta í rekstri, allt frá stefnumótun, fjármálum og upplýsingatækni til árangursstjórnunar og þjálfunar. Við erum í samstarfi við leiðandi alþjóðleg rannsóknar- og ráðgjafafyrirtæki og sækjum þar sérhæfðar lausnir og þekkingu. Meðal samstarfsaðila okkar eru Gallup, AC Nielsen, SPSS og Cognos. Hjá Capacent starfa hundrað manns.
Hlutverk okkar er að nýta þekkingu til að bæta árangur viðskiptavina á öllum sviðum og skapa þeim með því áþreifanleg verðmæti. Sérstaða Capacent er fólgin í einstakri nálgun við áskoranir viðskiptavina með samspili rannsókna, ráðgjafar, ráðninga og þjálfunar. Þekkingargrunnur Capacent mótast af fjölbreyttum rannsóknum, yfirgripsmikilli þekkingu og traustu samstarfi við fjölmörg alþjóðleg fyrirtæki.
Breytingar fela í sér tækifæri. Sérfræðingar Capacent hafa yfirgripsmikla þekkingu og aðstoða fyrirtæki og stofnanir við margvísleg verkefni, allt frá hugmyndum að innleiðingu breytinga. Við hjálpum þér að...
- kanna hug viðskiptavina og starfsmanna
- mæla ímynd og skilgreina markhópa
- móta framtíðarsýn, stefnu og skipulag
- skilgreina mælikvarða og mæla árangur
- finna og ráða rétta fólkið
- þjálfa stjórnendur
- meta arðsemi verkefna
- verðmeta fyrirtæki
- bæta verkferli og hagræða í rekstri
- innleiða ný gæðakerfi
- bæta stjórnkerfi og stjórnendaupplýsingar
- velja og innleiða ný upplýsingakerfi
- nýta upplýsingatækni með ýmsum hætti og margt fleira.
