Forsetaframboð
29.06.2012Forsetakosningar fara fram nk. laugardag og gerði Capacent Gallup könnun á fylgi frambjóðenda dagana 24.-28. júní. Könnunin var lögð fyrir bæði á neti og í síma. Samkvæmt niðurstöðum hennar mælist Ólafur Ragnar Grímsson nú með rétt tæplega 51% fylgi, Þóra Arnórsdóttir með tæp 34%, Ari Trausti Guðmundsson með rúmlega 9%, Herdís Þorgeirsdóttir með 3,4%, Andrea Jóhanna Ólafsdóttir með 2,5% og Hannes Bjarnason með 0,5% fylgi. Óákveðnir og þeir sem neita að svara eru um 10% aðspurðra. Um 5% þátttakenda segjast munu skila auðu eða ekki kjósa. Eins og sést í töflunni hér fyrir neðan greinist marktækur munur á stuðningi við frambjóðendur eftir kyni, aldri og menntun.


Tryggð við frambjóðendur
Einnig var kannað hversu ákveðnir svarendur eru í að kjósa þann frambjóðanda sem þeir sögðust styðja. Á heildina segja 68% svarenda öruggt að þeir kjósi þann frambjóðanda sem þeir sögðust styðja, 19% segja það mjög líklegt og 12% frekar líklegt. Stuðningsmenn Ólafs Ragnars og Þóru eru lang ákveðnastir í vali sínu, en 76% stuðningsmanna Þóru segja öruggt að þeir kjósi hana á kjördegi og 72% stuðningsmanna Ólafs Ragnars. Hins vegar segir innan við helmingur stuðningsmanna Ara Trausta öruggt að þeir kjósi hann og aðeins 34% stuðningsmanna annarra frambjóðenda.

Annað val kjósenda
Þeir sem sögðu ekki öruggt að þeir kysu þann frambjóðanda sem þeir nefndu, voru spurðir hvaða frambjóðanda væri næst líklegast að þeir kysu. Flestir segja næst líklegast að þeir kysu Ara Trausta, eða 35% svarenda. Næst flestir nefna Þóru, eða 24%, 16% nefna Ólaf Ragnar, 11% Herdísi, 8% Andreu og 6% Hannes. Af þeim sem segjast myndu kjósa Ólaf Ragnar en telja þó ekki öruggt að sú verði raunin á kjördegi, segja álíka margir að næst líklegasti kosturinn sé Ari Trausti eða Þóra. Þegar fylgi Þóru er skoðað með sama hætti sést að yfir helmingur segir næst líklegast að Ari Trausti verði kosinn. Óöruggir stuðningsmenn Ara Trausta skiptast til jafns á Þóru og Ólaf Ragnar.

Kjörsókn
Þegar fólk var spurt um líkur á mætingu á kjörstað kom í ljós að 12% höfðu annað hvort þegar kosið utan kjörfundar eða áformuðu það. Stærsti hópurinn, eða 72%, sagðist örugglega ætla að mæta á kjörstað, 11% sögðust sennilega myndu kjósa og 5% ætluðu sér annað hvort örugglega ekki eða sennilega ekki að kjósa . Tölfræðilega marktækur munur kom fram eftir því hvaða frambjóðendur fólk styður, þar sem stuðningsmenn Þóru og Ólafs eru mun líklegri til að mæta á kjörstað heldur en stuðningsmenn annarra frambjóðenda.

Spurt var:
Eftirfarandi eru í framboði til embættis forseta Íslands. Hvert þeirra myndir þú kjósa ef kosið yrði til forseta í dag? (Andrea J. Ólafsdóttir, Ari Trausti Guðmundsson, Hannes Bjarnason, Herdís Þorgeirsdóttir, Ólafur Ragnar Grímsson og Þóra Arnórsdóttir). Breytilegt var í hvaða röð nöfn frambjóðenda birtust. Hér að framan sagðir þú að þú myndir kjósa [frambjóðanda] ef kosið yrði til forseta í dag. Hversu ákveðin(n) ertu í að kjósa [frambjóðanda] í forsetakosningunum þann 30. júní nk.? Hvaða frambjóðanda er næst líklegast að þú kjósir? (Þeir spurðir sem segja ekki öruggt að þeir kjósi frambjóðanda í fyrri spurningu). Hversu líklegt er að þú mætir á kjörstað og kjósir í forsetakosningunum þann 30. júní nk.?
Niðurstöður sem hér birtast eru úr net– og símakönnun sem gerð var dagana 24.-28. júní 2012. Svarhlutfall var 60,7%, úrtaksstærð 2.000 einstaklingar 18 ára eða eldri af öllu landinu , annars vegar valdir af handahófi úr Viðhorfahópi Capacent Gallup og hins vegar handahófsvaldir úr Þjóðskrá.
Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.
Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang: sigrun.drifa.jonsdottir@capacent.is
Umsjón með útgáfu: Sigrún Drífa Jónsdóttir og Jón Karl Árnason
Ábyrgðarmaður: Vilborg Helga Harðardóttir © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn.