Þjóðarpúlsinn

Traust til margra stofnana á uppleið

25.02.2011

Gallup hefur kannað traust almennings til nokkurra stofnana og embætta frá árinu 1993 og hér eru birtar niðurstöður um traust til fimmtán stofnana og embætta. Í síðustu mælingu sem gerð var í febrúar 2010, voru breytingar á trausti til stofnana í flestum tilvikum ekki miklar, með einhverjum undantekningum þó. Að þessu sinni eru flestar stofnanir á uppleið þó traust mælist nú mun minna til Þjóðkirkjunnar og borgarstjórnar Reykjavíkur. Einnig hefur hlutfall þeirra sem ber mikið traust til lögreglunnar og Alþingis lækkað aðeins.
Landhelgisgæslan mælist með mest traust meðal þjóðarinnar af þeim stofnunum og embættum sem mældar voru, en hún nýtur trausts 89% svarenda. Tæplega 80% segjast nú bera mikið traust til lögreglunnar og Háskóli Íslands kemur þar á eftir en 76% bera mikið traust til hans. Traust til lögreglunnar og Háskóla Íslands breytist lítið frá því í fyrra. Traust til heilbrigðiskerfisins eykst um fjögur prósentustig milli ára og mælist nú 74%. Veruleg aukning er á trausti til embættis sérstaks saksóknara, en nær 69% segjast treysta embættinu nú samanborið við 57% í fyrra. Að sama skapi eykst traust til ríkissaksóknara um rúmlega 12 prósentustig milli ára og nýtur hann nú trausts 41% þjóðarinnar. Traust til umboðsmanns Alþingis eykst lítillega, eða um 3 prósentustig en rúmlega helmingur þjóðarinnar ber mikið traust til hans. Tæplega 41% ber mikið traust til embættis ríkissáttasemjara. Traust til dómskerfisins eykst nokkuð milli ára, en um 37% bera mikið traust til þess nú. Traust til þjóðkirkjunnar minnkar nokkuð milli ára en einungis þriðjungur treystir henni nú, samanborið við um 40% í fyrra. Traust til Seðlabankans eykst áfram milli mælinga en fimmtungur landsmanna bera mikið traust til hans nú. Traust til borgarstjórnar Reykjavíkur minnkar nokkuð milli mælinga en um 16% bera traust til borgarstjórnar. Ekki eru miklar breytingar á trausti til Alþingis og Fjármálaeftirlitsins frá því fyrra, um 12% treysta FME og um 11% Alþingi. Bankakerfið mælist með minnst traust þótt fjölgi aðeins í þeim hópi sem bera mikið traust til þess, en í honum eru 6% svarenda.

 

Niðurstöður sem hér birtast eru úr netkönnun sem gerð var dagana 2. - 10. febrúar. Svarhlutfall var 62,2%, úrtaksstærð 1. 189 einstaklingar. Einstaklingarnir voru 18 ára eða eldri af öllu landinu valdir af handahófi úr Viðhorfahópi Capacent Gallup.

Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.

Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang: sigrun.drifa.jonsdottir@capacent.is

Umsjón með útgáfu: Sigrún Drífa Jónsdóttir og Jón Karl Árnason

Ábyrgðarmaður: Vilborg Helga Harðardóttir © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn.

 

 

 

Allir Þjóðarpúlsar
Print Bookmark and Share