Forsetaframboð
26.06.2012Samkvæmt Þjóðarpúlsi Capacent Gallup mælist Ólafur Ragnar Grímsson nú með rétt tæplega 45% fylgi, Þóra Arnórsdóttir með 37%, Ari Trausti Guðmundsson með tæplega 11% fylgi, Herdís Þorgeirsdóttir með 5,3%, Andrea Jóhanna Ólafsdóttir með 1,6% og Hannes Bjarnason með 0,8% fylgi. Þróun á fylgi frambjóðenda milli mælinga má sjá á myndinni hér fyrir neðan.


Eins og sést í töflunni hér fyrir neðan greinist marktækur munur á stuðningi við frambjóðendur eftir aldri, menntun, stjórnmálaflokki sem kosinn yrði ef Alþingiskosningar færu fram í dag og stuðningi við ríkisstjórn.

Tryggð við frambjóðendur
Capacent Gallup kannaði einnig hversu ákveðnir svarendur eru í að kjósa þann frambjóðanda sem þeir sögðust styðja og voru niðurstöðurnar áhugaverðar. Heilt yfir segja 57% svarenda öruggt að þeir kjósi þann frambjóðanda sem þeir sögðust styðja, 27% segja það mjög líklegt og 17% frekar líklegt. Stuðningsmenn Ólafs Ragnars virðast mun ákveðnari í vali sínu en stuðningsmenn annarra frambjóðenda, en 72% stuðningsmanna hans segja öruggt að þeir kjósi hann á kjördegi. Stuðningsmenn Þóru eru næst ákveðnastir, en 57% segja öruggt að þeir kjósi hana. Af stuðningsmönnum Ara Trausta segja 23% öruggt að þeir kjósi hann og eru þeir sem styðja aðra frambjóðendur enn óákveðnari í vali sínu. Má leiða að því líkur að þessi staðreynd geti haft áhrif á lokafylgið.

Annað val kjósenda
Capacent Gallup spurði svarendur einnig hver væri að þeirra mati næstbesti kosturinn í embætti forseta Íslands. Flestir telja Ara Trausta Guðmundson næst besta kostinn, eða liðlega 36% svarenda. Næst flestir nefna Herdísi Þorgeirsdóttur, eða 23%,14% nefna Ólaf Ragnar Grímsson, tæplega 13% Þóru Arnórsdóttur, rúmlega 8% Andreu Jóhönnu Ólafsdóttur og rúmlega 6% Hannes Bjarnason. Eins og sést í töflunni hér fyrir neðan telja 37% stuðningsmanna Ólafs Ragnars Herdísi næstbesta kostinn en 30% nefnir þar Ara Trausta. Meirihluti stuðningsmanna Þóru telur Ara Trausta næstbesta kostinn en 18% þeirra nefna Ólaf Ragnar Grímsson. Skiptingin á meðal stuðningsmanna Ara Trausta er jöfn á milli Ólafs Ragnars og Þóru en hvort um sig er nefnt sem næstbesti kosturinn af um þriðjungi hans stuðningsmanna.


Spurt var:
Eftirfarandi eru í framboði til embættis forseta Íslands. Hvert þeirra myndir þú kjósa ef kosið yrði til forseta í dag?
(Andrea J. Ólafsdóttir, Ari Trausti Guðmundsson, Hannes Bjarnason, Herdís Þorgeirsdóttir, Ólafur Ragnar Grímsson og Þóra Arnórsdóttir). Breytilegt var í hvaða röð nöfn frambjóðenda birtust. Hér að framan sagðir þú að þú myndir kjósa [frambjóðanda] ef kosið yrði til forseta í dag. Hversu ákveðin(n) ertu í að kjósa [frambjóðanda] í forsetakosningunum þann 30. júní nk.? Hver þeirra er næstbesti kosturinn að þínu mati?
Niðurstöður sem hér birtast eru úr netkönnun sem gerð var dagana 14. - 20. júní 2012. Svarhlutfall var 58,5%, úrtaksstærð 1.350 einstaklingar 18 ára eða eldri af öllu landinu valdir af handahófi úr Viðhorfahópi Capacent Gallup. Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.
Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang: sigrun.drifa.jonsdottir@capacent.is
Umsjón með útgáfu: Sigrún Drífa Jónsdóttir og Jón Karl Árnason. Ábyrgðarmaður: Vilborg Helga Harðardóttir © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn.
Allar fréttir