Bandaríska fyrirtækið IBM, sem er leiðandi á sviði viðskiptahugbúnaðar, hefur gefið Capacent vottun sem IBM Premier Business Partner, en það er æðsta vottun sem samstarfsaðilar IBM geta hlotið.
Út er komin bókin Forskot eftir Þórð Sverrisson. Forskot er fyrsta íslenska bókin sem tekur á heildstæðan hátt á lykil viðfangsefnum í stjórnun fyrirtækja þ.e. stefnumótun og framtíðarsýn, skipulagi og stjórnun, og margvíslegum viðfangsefnum í markaðsstarfi.
Einar Einarsson, framkvæmdastjóri rannsóknarsviðs Capacent og Tómas Bjarnason, rannsóknastjóri Capacent, rita grein í Fréttablaðið fimmtudaginn 9. maí þar sem að þeir fjalla um hlutverk skoðanakannana og kosningar.
Skiptar skoðanir koma oft fram þegar hlé á sýningum í kvikmyndahúsum ber á góma og lék Capacent forvitni á að vita hver almenn skoðun landsmanna væri í þessum efnum.